YourSite - Slogan Here!

Opið menntaefni í framhaldsmenntun

Skólayfirvöld víða um heim móta nú stefnu um opið menntaefni. Í menntaskrifstofu fylkisins Utha var þessi stefna gefin út 25. janúar 2012:

 

Utah State Office of Education to Create Open Textbooks

SALT LAKE CITY — The Utah State of Office of Education (USOE) today
announced it will develop and support open textbooks in the key
curriculum areas of secondary language arts, science, and mathematics.
USOE will encourage districts and schools throughout the state to
consider adopting these textbooks for use beginning this fall.

Open textbooks are textbooks written and synthesized by experts,
vetted by peers, and made available online for free access,
downloading, and use by anyone. Open textbooks can also be printed
through print-on-demand or other printing services for settings in
which online use is impossible or impractical. In earlier pilot
programs, open textbooks have been printed and provided to more than
3,800 Utah high school science students at a cost of about $5 per
book, compared to an average cost of about $80 for a typical high
school science textbook.

“Utah’s open textbooks are a great use of technology,” said State
Superintendent of Public Instruction Larry K. Shumway. “Texts get into
classrooms quickly and can be updated as needed rather than on a
publishing schedule – something that’s particularly important in
science. The open textbook also adds to Utah’s reputation as the most
cost-efficient school system in the country. This is a fantastic way
to get the latest textbooks into the hands of Utah’s nearly 600,000
public school students.”

“We’re thrilled that the State of Utah is encouraging school districts
to consider adopting open textbooks,” said Barbara Chow, Education
Programs director at The William and Flora Hewlett Foundation, which
helped fund the project. “At a time when education budgets are under
increasing stress, digital technology in the form of open textbooks
now offers the potential to save school systems millions of dollars.”

Later this spring the Utah State Office of Education will invite all
districts and charter schools across the state to attend informational
meetings and professional development designed to help open textbook
adoptions succeed.

The decision to pursue open textbooks at scale comes after two years
of successful open textbook pilots led by David Wiley of Brigham Young
University’s David O. McKay School of Education. Each pilot was
conducted by the BYU-Public School Partnership in partnership with the
Utah State Office of Education. The William and Flora Hewlett
Foundation provided funding. Mathematics and science textbooks will be
based on books originally published by the CK12 Foundation, a
not-for-profit organization based in California founded with the
mission to produce free and open source K-12 materials aligned to
state curriculum.

In new research soon to be published in the International Review of
Research in Open and Distance Learning, Wiley and his colleagues found
that Utah high school students learn the same amount of science in
classes using the $5 open textbooks as they do in classes using the
$80 traditional textbooks.

www.schools.utah.gov


Hakkavélin og fablab

Hakkavélin er íslenskt “hacker space” þ.e.  samfélag  áhugafólks um stafræna tækni.  Félagar hittast á þriðjudagskvöldum að Grandagarði 16 kl. 20.

Hér er skilgreining á hacker space.  Þetta er hugsun nátend fablab en tvö fablab eru núna á Íslandi (í Vestmannaeyjum og á Akranesi) og unnið er að uppsetningu slíks í Reykjavík.  Margir hafa áhuga á Reprap og ýmis konar stafrænu föndri með arduino kortum.

Hakkavélin hefur gengist fyrir ýmsum viðburðum, núna yfir áramótin var hópur erlendra hakkara staddur á landinu og var dagskrá hjá Hakkavélinni í tengslum við það.

FSFÍ kynnir Reykjavík Digital Freedom Workshop og Reykjavík Digital Freedom Conference

Úr auglýsingu um viðburðinn:

= Reykjavík Digital Freedom Workshop =

Helgina 13. - 14. nóvember 2010 verður haldin vinnustofa um stafrænt frelsi í
fyrsta skipti. Á vinnustofunni verður leitast við að kynna áhugasömum
hin ýmsu íslensku frjálsu verkefni sem unnið er að á Íslandi (eða sem
tengjast Íslandi). Vinnustofurnar fela í sér óformlegar kynningar
(stutta fyrirlestra), kennslu og verkefnavinnu. Við vonumst til þess að
vinnustofan geti hjálpað frjálsum, íslenskum verkefnum að þróast áfram
sem og vakið áhuga fleiri framtíðarþátttakenda á verkefnunum.

Vinnustofurnar verða 2, 4 eða 8 tímar með meiri áherslu á styttri
vinnustofur svo þátttakendur fái tækifæri til að kynnast fleiri
verkefnum.

Sem dæmi um vinnustofur sem gætu verið haldnar helgina 13. - 14.
nóvember eru:

* Stafrænt frelsi í íslenskum skólum
* OpenStreetMap kortagerð og notkun
* is.wikipedia.org
* IMMI (Icelandic Modern Media Initiative)
* Þýðingar á frjálsum hugbúnaði
* Creative Commons Iceland
* Hakkavélin (íslenskt hackerspace)

FSFÍ auglýsir eftir aðilum sem vilja taka að sér að sjá um
vinnustofurnar sem stungið er upp á hér fyrir ofan eða einhverjum sem
hafa áhuga á því að hafa aðra vinnustofu og sjá um hana. FSFÍ er opið
fyrir öllum hugmyndum og vill hafa Reykjavík Digital Freedom Workshop
eins fjölbreytt og mögulegt er.

Nú þegar hefur ein vinnustofa verið ákveðin en það er Nordic Perl
Workshop 2010 sem halda átti í vor en var lögð niður vegna eldgoss í
Eyjafjallajökli. Sú vinnustofa verður heill dagur (þann 14. nóvember) og
er skipulögð af Dananum Jonas Brømsø Nielsen.

Endilega sendið okkur hugmyndir að vinnustofum sem þið viljið vera með
eða óskir um að fá að halda vinnustofurnar sem við höfum stungið upp á
með því að senda okkur póst á stjorn@fsfi.is. Látið okkur þá vita í sama
pósti hversu löng þið viljið að vinnustofan sé (2, 4 eða 8 klukkutímar).

Skilafrestur innsendinga er sunnudagurinn 31. október.

Stjórn FSFÍ birtir þær vinnustofur sem verða haldnar eins fljótt og
auðið er eftir að skilafrestur rennur út og ekki seinna en viku síðar.

Við hlökkum til að gera þessa helgi að skemmtilegri og áhugasamri
vinnuhelgi fyrir stafrænt frelsi.

= Reykjavík Digital Freedom Conference =

Ráðstefnan um stafrænt frelsi á Íslandi verður haldin, líkt og í fyrra,
þann 1. desember.

FSFÍ vinnur nú hörðum höndum að skipulagningu ráðstefnunnar og hefur
ákveðið tvö þemu fyrir ráðstefnuna:

* Stafrænt frelsi í opinberum rekstri
  - Hvernig hefur stafrænt frelsi hjálpað opinberum aðilum á Íslandi
    og hvert er hlutverk stafræns frelsis í framtíðinni?
* Þekkingin er á Íslandi
  - Það er til fullt af frjóum, frelsismeðvituðum Íslendingum. Hvernig
    hefur Ísland tekið þátt í auknu stafrænu frelsi? Kynning á
    íslenskum frjálsum verkefnum ásamt erlendum verkefnum sem
    Íslendingar taka þátt í.

FSFÍ auglýsir eftir íslenskum fyrirlesurum sem vilja halda 20 mínútna
fyrirlestra um sín hjartans mál sem tengjast ofangreindum þemum.

Sendið stjórn FSFÍ tölvupóst (á stjorn@fsfi.is) með titli fyrirlestrar
og stuttum útdrætti ásamt lýsingu á ykkur. Þið getið einnig sent okkur
póst ef þið vitið af einhverjum sem ykkur þætti áhugavert að heyra í sem
við getum þá sett okkur í samband við.

Skilafrestur innsendinga er sunnudagurinn 7. nóvember.

Til þess að ráðstefnan gangi vel fyrir sig auglýsir FSFÍ eftir aðilum
sem vilja aðstoða FSFÍ við skipulagningu á ráðstefnunni. Endilega látið
okkur vita ef þið viljið aðstoða okkur við að fullkomna ráðstefnuna.

Á ráðstefnunni í fyrra veitti FSFÍ í fyrsta skipti frelsisverðlaun FSFÍ.
Verðlaunin hlaut Bjarni Rúnar Einarsson fyrir framlag sitt til frjálsa
samfélagsins í gegnum árin. Frelsisverðlaunin verða veitt í annað sinn á
ráðstefnunni þann 1. desember 2010 og FSFÍ leitar nú að tilnefningum til
frelsisverðlauna FSFÍ 2010. Ef þið vitið af einhverjum aðila sem hefur
unnið aðdáunarvert starf til að auka stafrænt frelsi á Íslandi endilega
látið okkur vita með því að senda tölvupóst á stjorn@fsfi.is og
tilgreinið stuttlega af hvern þið tilgreinið og af hverju.

Skilafrestur tilnefninga rennur út sunnudaginn 7. nóvember.

Stjórn FSFÍ tilkynnir dagskrá ráðstefnunnar eins fljótt og auðið er
eftir að skilafrestur rennur út og ekki seinna en viku síðar.

Við hlökkum til að sjá ykkur á vinnustofu stafræns frelsis, helgina
13.-14. nóvember og ráðstefnu um stafrænt frelsi á fullveldisdaginn 1.
desember og vonumst til að við getum í sameiningu gert báða viðburðina
eftirminnilega og skemmtilega.

= Mikilvægar dagsetningar =

* Vinnustofa um stafrænt frelsi:
      Helgin 13.-14. nóvember
* Ráðstefna um stafrænt frelsi:
      Miðvikudagurinn 1. desember
* Skilafrestur um tillögur að vinnustofum og stjórn vinnustofa:
      Sunnudagurinn 31. október
* Skilafrestur fyrirlesara sem vilja halda fyrirlestur á ráðstefnunni:
      Sunnudagurinn 7. nóvember
* Skilafrestur tilnefninga til frelsisverðlauna FSFÍ árið 2010:
      Sunnudagurinn 7. nóvember

Kveðja,
Stjórn FSFÍ

Hugarkort – opinn hugbúnaður

Tveir góðir kostir varðandi hugarkort eru Freemind og xmind.
Freemind má sækja á þessari slóð

http://freemind.sourceforge.net

Hér er kynning á freemind (gömul útgáfa frá 2006)

Sjö útbreidd open source kerfi fyrir fjarkennslu

Í þessari grein er fjallað um sjö kerfi sem vinsæl og útbreidd eru í fjarkennslu

* efront
* Moodle
* Dokeos
* Claroline
* Ilias Learning Management
* Sakai Project
* Olat

Vefur um openoffice

Mikill hugur er hjá Verkmenntaskólanum á Akureyri varðandi notkun opins hugbúnaðar, ekki síst að taka upp openoffice í stað Microsoft office. Opnaður hefur verið mediawiki vefur:
http://www.openoffice.is

Handbók um stafrænt frelsi

Gefin hefur verið út handbók um stafrænt frelsi. Bókin er aðgengileg á vefnum ut.is.

Opnum skólastofuna

Sigurður Fjalar skrifar um nýja meistaraprófsritgerð Hafdísar Pálínu en hún fjallaði um áhrif námsstjórnunarkerfisins Moodle í tveimur framhaldsskólum. Moodle er ókeypis og opinn hugbúnaður sem til er á íslensku og hefur verið vinsæll valkostur við kerfi eins og Blackboard. Umfjöllun Sigurðar Fjalar er í þessari bloggfærslu Opnum skólastofuna og þar má finna tengil í ritgerð Hafdísar Pálínu.

Nýtt félag FSFÍ

Stofnað hefur verið félagið Félag um Stafrænt Frelsi á Íslandi

FSFÍ ætlar að standa fyrir ráðstefnu þann 5. júlí næstkomandi og verða meðal fyrirlesara Eben Moglen frá Free Software Foundation og John Perry Barlow frá Electronic Frontier Foundation.

Þýðingarverkfæri fyrir opinn hugbúnað

Fyrir okkur á Íslandi skiptir miklu máli að við höfum aðgengileg góð þýðingarverkfæri. Fyrir opinn hugbúnað er hægt að nota Pootle eða Rosetta Launchpad

Sjá nánar

  • https://launchpad.net/rosetta
  • http://pootle.wordforge.org/

Testing ísbjörnW

þorskur|þorskurinnW

[w:ísbjörn]